Hvað er að ybba gogg?
Sögnin að ybba þekkist í málinu frá 17. öld og merkir ‘ýfast, derra sig’. Af sögninni er líklega leitt lýsingarorðið ybbinn ‘argur, önugur, ósvífinn’. Goggur merkir annars vegar ‘nef á fugli’ en hins...
View ArticleHvert er stærsta sprengigos á Íslandi og hvenær varð það?
Þó Tindafjallajökull sé sennilega minnst kannaða eldfjall á Íslandi, er það einmitt sú eldstöð sem líklega hefur gosið stærsta sprengigosi sem vitað er um hér á landi. Það voru reyndar ekki...
View ArticleEr 666 tala djöfulsins?
Síðasta rit Biblíunnar kallast Opinberunarbókin. Hún tilheyrir bókmenntagrein sem nefnist heimsslitafræði (e. eschatology) en það hugtak er haft um texta sem boða endalok heimsins eins og hann er....
View ArticleEr náskata æt?
Náskata (Raja fullonica) er vel æt og hún er unnin á sama hátt og aðrar skötutegundir sem eru veiddar hér við land, svo sem skata (Raja batis) og tindaskata (Raja radiata). Árið 2020 var heildarafli...
View ArticleHversu lengi gæti sprungugos á Reykjanesi staðið yfir?
Spurningu Páls Jökuls er hér svarað að hluta en hann spurði upprunalega: Hvað eru íslensk eldgos lengi vanalega, bara spá útaf því ég bý hér í Njarðvík? Aðalgosvá á Reykjanesskaga stafar af...
View ArticleEr íslenski hesturinn smáhestur?
Upprunalega spurningin var: Hvers vegna eru íslenskir hestar ekki smáhestar ef smáhestar (pony) geta verið á stærð við íslenska hestinn? Hvað gerir íslenska hestinn að hesti frekar heldur en smáhesti?...
View ArticleHvers konar gos hafa orðið á Reykjanesskaga?
Hraun þekja um tvo þriðju hluta Reykjanesskaga. Þar er hlutur dyngjuhrauna mun stærri, rúmlega einn þriðji, en sprunguhraun rúmlega einn fjórði af flatarmáli skagans. Ýmis önnur tilbrigði hafa komið...
View ArticleEru til einhver ensk orð sem tekin eru úr íslensku?
Vissulega eru til íslensk tökuorð í ensku en miklu fremur fornnorræn. Sem dæmi mætti nefna berserk (= berserkur), egg, geysir, jökulhlaup, rannsaka, saga, skata, sky (e. himinn, ísl. ský). Hafa þarf í...
View ArticleEr eldfjallagas þungt eða létt?
Þetta er góð spurning og mikilvæg þegar þetta er skrifað og við getum átt von á eldfjallagösum upp úr jörðinni hvenær sem er. Þau eru af ýmsum tegundum og áhrif þeirra á menn og náttúru ráðast einkum...
View ArticleHvaða kram er átt við þegar eitthvað fellur ekki í kramið?
Hvorugkynsorðið kram er notað um (óþarfa)varning, verðlausa vöru og þekkist að minnsta kosti frá því seint á 16. öld. Samkvæmt ritmálssafni Orðabókar Háskólans þekkist orðasambandið að eitthvað falli...
View ArticleHvaðan koma örnefnin Þráinsskjöldur og Þráinsskjaldarhraun?
Þráinsskjaldarhraun er mikið í fréttum þessa dagana vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, ásamt Fagradalsfjalli, Keili, Litla-Hrút, Krýsuvík, Brennisteinsfjöllum og fleiri góðum örnefnum. Heitið virðist...
View ArticleAf hverju geta ráðherrar ráðið aðstoðarmenn án þess að auglýsa störf þeirra?
Upprunalega spurningin var: Af hverju eru ráðningar aðstoðarmanna ráðherra undanskildar lögum um auglýsingaskildu starfsmanna ríkisins? Stutta svarið við spurningunni er að aðstoðarmenn ráðherra eru...
View ArticleHverjar eru helstu orsakir heimilisofbeldis og hversu algengt er það á Íslandi?
Í heild hljóðaði spurningin svona:Mig langar að vita um helstu orsakir heimilisofbeldis og hversu algengt það er hérna á Íslandi? Og hverjir gerendurnir eru og þolendur? Almenna hugmyndin um...
View ArticleHvað er samfélagsábyrgð?
Hugtökin „samfélagsábyrgð“ eða „samfélagsleg ábyrgð“ geta haft margvíslegar og ólíkar merkingar. Í sinni einföldustu mynd vísa þau til þess að manni ber að taka ákvarðanir sem snúast ekki einungis um...
View ArticleVirkar silfur gegn örverum?
Öll spurningin hljóðaði svona: Nú eru til vörur sem eru með silfurjónir á yfirborðinu í þeim tilgangi að hefta vöxt og eyða bakteríum (ISO 22196). Virkar þetta einnig gegn veirum? Silfur hefur...
View ArticleHvað er vitað um dyngjugos á Reykjanesskaga?
Dyngjugos á Reykjanesskaga byrja sennilega í flestum tilvikum sem sprungugos. Vísbendingar um slíkt má sjá í Fagradalsfjallskerfinu og víðar. Virknin færist síðan smám saman í einn gíg og þróast í...
View ArticleEr siðferðilega rétt að nota bóluefni við COVID-19 ef siðferðilega staðla við...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona: Er siðferðilega rétt að nota bóluefni við COVID-19 sem hefur verið prófað nauðugt á föngum eða ef aðra siðferðilega staðla í þróun þess vantar? Þegar...
View ArticleHvað er klyfjagangur eða lestagangur, margir kílómetrar á klukkustund?
Hugtökin klyfjagangur og lestagangur eru samheiti og vísa til þess hversu langt klyfjuð hestalest fer yfirleitt á einni klukkustund, en það er um 5 km. Önnur samheiti eru fet, fetgangur og einnig...
View ArticleVar Ingólfur Arnarson með skegg og var hann skipaður amtmaður?
Hér er spurt um tvennt: Annars vegar skeggvöxt Ingólfs Arnarsonar og hins vegar hvort hann hafi gegnt embætti amtmanns. Það er auðvelt að afgreiða seinni hluta spurningarinnar fyrst, enda er svarið...
View ArticleHvernig get ég reiknað út fjarlægðir á milli jarðskjálfta á Reykjanesskaga?
Í heild hljóðaði spurningin svona:Þegar maður er að skoða staðsetningu jarðskjálfta á vef Veðurstofunnar þá eru þeir staðsettir með tölum í lengdar- og breiddargráðum. Nú langar mig að vita hvað ein...
View Article