Hugtökin klyfjagangur og lestagangur eru samheiti og vísa til þess hversu langt klyfjuð hestalest fer yfirleitt á einni klukkustund, en það er um 5 km. Önnur samheiti eru fet, fetgangur og einnig seinagangur.
Klyfjgangur er um 5 km á klukkustund. Á myndinni sjást klyfjaðir hestar fara yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Myndin er tekin af dönskum landmælingamönnum á árabilinu 1900-1910.
Fyrr á tíð voru hestar notaðir til að bera hey í hlöðu. Heyið var þá bundið í 40-50 kg bagga og hver hestur ba...
↧