Ekki er vitað fyrir víst hvaða dýr voru hér við landnám, fyrir rúmum 1.000 árum, en sennilega er dýralífið að sumu leyti áþekkt því sem það er í dag, þó dreifing og fjöldi einstaklinga þessara dýrategunda hafi breyst með landnámi manna.
Gróðurfar hefur breyst mikið frá landnámi og fræg er lýsing Ara fróða í Íslendingabók á því að við landnám hafi Ísland verið viði vaxið milli fjalls og fjöru. Grasafræðingar telja að þá hafi stór hluti gróðursins verið kjarr eða hrís en myndarlegir birkiskóga...
↧