Í febrúarmánuði 2018 voru birt 53 ný svör á Vísindavefnum. Að auki var fjölmörgum fyrirspurnum svarað með því að vísa lesendum á efni sem til er og sumum spurningum var svarað með tölvupósti og símtölum.
Tvö mest lesnu svörin í febrúar tilheyra flokki á Vísindavefnum sem helgaður er ártalinu 1918, það eru svör um ísbirni og mataræði Íslendinga 1918. Í þessum flokki birtast svör sem unnin eru vegna 100 ára afmælis fullveldis á Íslandi. Önnur ný svör sem vöktu sérstaka athygli fjölluðu um þýðin...
↧