Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Hvers vegna eru ekki skotin jafnmörg hreindýr af hvoru kyni á hverju tímabili?
Í villtum hreindýrastofnum er kynjahlutfall skekkt vegna hærri dánartíðni tarfa. Það tengist fengitímanum en þá fer mestur tími tarfanna í hlaup og slagsmál. Þá horast þeir niður og sumir særast. Ef vetur er harður falla þeir því oft fyrstir.
1. mynd. Fullorðnir tarfar berjast um kýrnar á fengitíma á Fagradal.
Stefnt er að því að fjórir tarfar séu á móti sex kúm í íslen...
↧