Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Eru öflugt leysiljós sýnilegt yfir einhverja marktæka vegalengd í gegnum snjóstorm?
Dæmi: Ferðamaður upp á jökli týnist í blindbyl, hann er með öflugt leysiljós (1000mW+). Mundi björgunarsveitin sjá leysiljósið yfir einhverja marktæka vegalengd?
Stutta svarið við þessari spurningu er nei. Við getum séð svipaðar aðstæður þegar friðarsúlan í Viðey lýsir upp í afmarkað skýjaþykkni. Neðan skýja er súlan dauf og bláleit ásýndar en um leið og hún nær upp...
↧