Gissur Þorvaldsson var höfðingjasonur í Árnesþingi, áttundi maður í beinan karllegg frá Ketilbirni gamla Ketilssyni, landnámsmanni á Mosfelli í Grímsnesi, sjötti maður frá Gissuri hvíta, forystumanni að kristnitöku Íslendinga, fimmti maður frá Ísleifi Gissurarsyni biskupi í Skálholti. Í móðurætt var Gissur sonur Þóru Guðmundsdóttur yngri frá Þingvöllum. Hún var í föðurætt komin af þeim sem fóru með allsherjargoðorð og hafa líklega talist afkomendur Ingólfs Arnarsonar í Reykjavík. Í móðurætt var ...
↧