Svarið við spurningunni er já. Allmargir Vestur-Íslendingar dóu í skotgröfum fyrri heimsstyrjaldarinnar, allir á vesturvígstöðvunum í Belgíu og Norður-Frakklandi.
Heimsstyrjöldin fyrri hófst 28. júlí 1914 og henni lauk 11. nóvember 1918. Upplýsingar eru til um 1.245 Vestur-Íslendinga sem tóku þátt í stríðinu. Af þeim voru 989 í Kanadaher og 256 í Bandaríkjaher. Til viðbótar hafa fundist rúmlega hundrað íslensk nöfn á herskrám en lítið eða ekkert er vitað nánar um þá menn. Af þessum 1.245 herm...
↧