Munurinn á næringargildi hvítra hrísgrjóna og hýðishrísgrjóna er í raun álíka mikill og munurinn á franskbrauði og grófkornabrauði.
Nýlega voru kynntar í British Medical Journal niðurstöður sem benda til þess að mikil neysla á hvítum hrísgrjónum geti aukið hættuna á sykursýki af tegund 2 (fullorðinssykursýki). Rannsakendurnir tóku saman niðurstöður allra rannsókna sem uppfylltu ákveðin skilyrði og þar sem rannsóknarspurningin fjallaði um áhrif neyslu hvítra hrísgrjóna á tilurð sykursýki af te...
↧