Þorleifur Einarsson svarar spurningunni stutt og laggott í Jarðfræði1 sinni: „Stór jökulborin björg nefnast grettistök.“ Sú viska opinberaðist mönnum samt ekki fyrr en um miðja 19. öld þegar ljóst varð að fyrrum höfðu jöklar þakið stór svæði sem síðan urðu jökulvana. Í Ferðabók Eggerts og Bjarna (1772) segir í 693. grein sem fjallar um fornminjar í Dalasýslu og á Vestfjörðum:2
Grettistök heita stóreflisbjörg, sem sagt er, að Grettir sterki hafi lyft upp á smærri steina, sem þau hvíla á. Grettis...
↧