Það má skipta límgerðum gróflega í tvo flokka eftir virkni þeirra. Annar flokkurinn byggir á herslu (stífnun) af völdum efnahvarfa og hinn flokkurinn byggir á herslu af völdum uppgöfunar vökva (leysi). Lím í fyrri flokknum eru almennt sterkari en lím úr seinni flokknum en jafnframt eru þau oft vandmeðfarnari og geta verið ertandi fyrir hörund, lyktsterk og jafnvel eitruð.
Dæmi um lím úr fyrri flokknum er til dæmis tveggja þátta lím á borð við epoxý (sjá mynd 1) og pólýúretan (e. polyurethane)...
↧