Hekla er þekktust eldfjalla á Íslandi og megineldstöð samnefnds eldstöðvakerfis í vesturjaðri Austurgosbeltis. Eldstöðin er í mótun og án sýnilegrar öskju og jarðhitakerfis.
Heklugos 1970.
Gos í Heklu sjálfri hefjast sem þeytigos með gjóskufalli úr háum gosmekki. Þeim stærstu virðist ljúka án þess að hraun renni, en öll Heklugos á sögulegum tíma, nema það fyrsta, árið 1104, eru blandgos þar sem hluti kvikunnar kemur upp sem hraun. Hún er súr og/eða ísúr, kísilríkust í upphafi, en breytist þ...
↧