Eldfjöll gefa það til kynna, hvert með sínum hætti, þegar von er á gosi. Landris eða landsig á sér stað, smáskjálftavirkni eykst og stærri skjálftar ríða yfir, jarðhitavirkni fer vaxandi. Gufusprengingar og smágos geta stundum verið undanfari meiri umbrota.
Heklugos hafa yfirleitt hafist án fyrirvara sem mannleg skilningarvit geta greint. Á umliðnum öldum hefur fólk í nágrenni Heklu aðeins þóst geta merkt einn forboða gosa. Lækir með upptök í lindum við rætur fjallsins eru taldir hafa minnka...
↧