Nafnið Blær er karlmannsnafn á sama hátt og samnafnið blær 'andvari, vindgustur' og bera það allnokkrir karlar ýmist sem fyrra eða síðara nafn. Það beygist í nútímamáli:
nf.Blærþf.Blæþgf.Blæef.Blæs
Þekkt er, einkum í kveðskap, að orðið beygist eins og forn wa-stofn, það er í þágufalli blævi og í eignarfalli blævar.
Í lögum nr. 45 frá 17. maí 1996 um íslensk mannanöfn er eftirfarandi ákvæði sem var óbreytt frá 1991:Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.Þar sem B...
↧