Á Íslandi er mestallt neysluvatn grunnvatn. Vatnsbólin eru ýmist náttúruleg uppspretta eða borað hefur verið eftir vatninu. Vatnið er síðan flutt í lokuðu kerfi frá vatnsbóli til krana neytenda.
Það er ýmislegt sem getur spillt neysluvatni eða rýrt gæði þess. Yfirborðsvatn getur komist í vatnsbólið sé frágangi ábótavant, en með yfirborðsvatni má vænta mengunar frá mönnum og dýrum sem getur verið sjúkdómsvaldandi. Með réttri staðsetningu vatnsbóls, góðum frágangi og vel skilgreindu verndar...
↧