Hér er einnig svarað spurningunum:Tíu ára syni mínum langar svo að vita hvað fitusprenging í mjólk er.
Hvernig virkar fitusprenging í mjólkurafurðum? Þ.e.a.s hvernig fer hún fram?
Mjólk sem kemur beint úr spenum kúa inniheldur um 3,8-4,2% fituefni á formi fitukúla (e. fat globules). Þessar fitukúlur eru um 0,1-20 µm í þvermál og meðalþvermál þeirra er um 3,5 µm. Í hverjum millilítra af mjólk eru um 1010 fitukúlur og eru þær jafndreifðar um mjólkina. Um 98% af mjólkurfitunni er blanda af þrí...
↧