Öll spurningin hljóðaði svona:
Af hverju þurfa mörgæsir að lifa í kulda? Gætu þær búið í Bolungarvík?
Mörgæsir þurfa alls ekki að lifa í kulda. Ólíkt því sem margir halda þá lifa mörgæsir ekki aðeins á köldum úthafseyjum suðurhafanna og á Suðurskautslandinu, heldur finnast stofnar einnig á Nýja-Sjálandi, í Suður-Afríku, Namibíu (við rætur eyðimerkur) og í Suður-Ameríku, þar sem getur verið mun hlýrra en við Íslandsstrendur.
Heimkynni mörgæsta lituð með bláum lit. Heimkynnin eru á suðu...
↧