Quantcast
Channel: Vísindavefurinn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4637

Hver eru elstu þekktu tengsl Japans og Íslands?

$
0
0
Íslendingar eiga nokkra fræga Asíufara frá fyrri öldum, meðal annars Jón Ólafsson Indíafara (f. 1593) og Árna Magnússon frá Geitastekk (f. 1726), en enginn þeirra heimsótti Japan svo vitað sé. Líklegasta skýringin er sú að Japan var að miklu leyti lokað fyrir umheiminum á hinu svokalla sakoku-tímabili, sem varði frá upphafi 17. aldar til miðrar 19. aldar. Á þessum tíma voru allar ferðir til og frá landinu undir ströngu eftirliti. Japanir máttu ekki ferðast til annarra landa nema með sérstöku ley...

Viewing all articles
Browse latest Browse all 4637