Lýsingarorðið kampakátur merkir ‛glaður, kátur og hreykinn í senn’. Nafnorðið kampur merkir ‛skegg’, samanber að brosa í kampinn ‛brosa við, brosa með sjálfum sér’. Hugsunin að baki kampakátur er líklega að skeggið iði, lyftist við það að viðkomandi brosir af kátínu.
Þessi brosir í kampinn en það er spurning hvort hann sé kampakátur!
Mynd:
Flickr - Ollas Per Persson, Almo, Dalarna, Sweden. Enginn höfundarréttur. (Sótt 26.6.2012).
...
↧