Elstu þekktu dæmin um orðið lýðveldi (e. republic) í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru í ritinu Miðaldarsagan eftir Pál Melsteð frá 1866. Það er því ekki mjög gamalt í málinu.
„átti Genúa í ófriði við lýðveldið Písa.“ (bls. 224)„Hið elzta miðaldaríki á Ítalíu var lýðveldið Venezía.“ (bls. 226)
Aðeins eldra orð yfir ríki sem aðhyllast slíkt stjórnarfar er lýðstjórnarríki. Elsta dæmið um það er í Nýjum félagsritum 1841 en allmörg dæmi eru um það í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans fram á ...
↧