Stutta svarið hljómar svona: Danir höfðu blátt áfram engan áhuga lengur á því að ráða yfir Íslandi. Árið 1848 var einveldi afnumið í Danmörku og frá því að þingræði var innleitt árið 1901 höfðu frjálslyndir stjórnmálamenn setið að völdum, menn sem höfðu samúð með sjálfstæðiskröfum Íslendinga. Það getur aldrei þjónað hagsmunum smáþjóðar eins og Dana að undiroka aðra enn smærri þjóð, sagði Carl Theodor Zahle, forsætisráðherra Danmerkur, þegar sambandslögin voru rædd í danska þinginu í nóvember 191...
↧