Öll spurningin hljóðaði svona: Hvaðan kemur nafnið krossfiskur? Af hverju ekki stjörnufiskur?
Elsta heimild um orðið krossfiskur í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr ritinu Ein stutt undirrietting um Íslands adskilianlegar náttúrur eftir Jón Guðmundsson lærða. Dæmið er svona:
Krossfiskur og hagalfiskur, myklu fleyri, margbreyttari soddan kyn.
Heldur yngri heimild er úr ritgerð eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík, ritara Árna Magnússonar handritasafnara. Ritgerðin er frá miðri 18. öld ...
↧