Þegar kvika (bráðið berg) rís úr gosrás og tvístrast í gjósku er hún upphaflega meira en 800°C heit og fer hratt, um 600 metra á sekúndu.[1] Gjóskan rís síðan með gosmekkinum, sem í upphafi er gerður af gjóskunni, sem er 90-99% af massa makkarins og afgangurinn úr eldfjallagastegundum eins og vatni, koltvíoxíði, brennisteinstvíoxíði, saltsýru, flúrsýru og brennisteinsvetni.[2] Einnig er töluvert af málmum í gasfasa við þetta hitastig.
Mökkur úr gosinu í Eyjafjallajökli, myndin er tekin 17. ap...
↧