Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir er prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar spanna vítt svið innan kvenna- og kynjafræða og hún hefur tekið þátt í fjölda íslenskra og alþjóðlegra rannsóknarverkefna.
Fyrstu rannsóknir Þorgerðar voru á sviði sérfræðihópa og fagþróunar í framhaldi af doktorsritgerð hennar um kynja- og sérgreinaskiptingu læknastéttarinnar. Rannsóknir á samræmingu atvinnu og fjölskyldulífs, og þátttöku karla í fjölskyldulífi, voru einnig fyrirferðamikla...
↧