Ásgrímur Angantýsson er dósent í íslenskri málfræði við Kennaradeild Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa aðallega beinst að breytileika í setningagerð og samtímalegum samanburði íslensku og skyldra mála, ekki síst færeysku. Niðurstöður hafa verið birtar bæði á innlendum vettvangi og í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum og fræðiritum. Ásgrímur hefur einnig rannsakað stöðu íslenskunnar í skólakerfinu og viðhorf ungmenna til máls og málfræði. Þá hefur hann tekið þátt í margvíslegu rannsóknasamstarfi...
↧