Sigurður Kristinsson er prófessor í heimspeki við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hans hafa einkum verið á sviði siðfræði og þá gjarnan í tengslum við hagnýtingu hennar á ýmsum vettvangi.
Í ritum sínum hefur Sigurður fjallað um fjölbreytt efni með fræðilega og samfélagslega skírskotun. Þar má annars vegar nefna söguleg efni á borð við kenningu Aristótelesar um vináttuna og Tómasar frá Akvínó um frjálsan vilja og fræðileg viðfangsefni í samtímaheimspeki, einkum er...
↧