Karlmannsnafnið Mekkinó er myndað af kvenmannsnafninu Mekkín. Fyrsti karlmaðurinn sem bar nafnið fæddist árið 1900. Mekkinó er sjaldgæft nafn og samkvæmt gagnagrunninum Íslendingabók hafa sjö karlmenn borið nafnið, þar af þrír sem seinna nafn af tveimur.
Mekkín á sér lengri sögu og virðist fyrst notað á 17. öld. Í manntalinu frá 1703 eru skráðar fjórar konur með þessu nafni, allar í Múlasýslum.
Ein skýring á uppruna nafnsins Mekkín er sú að kona sem leyst var úr ánauð frá Alsír eftir Tyrkj...
↧