Samkvæmt upplýsingum frá Erling Ólafssyni skordýrafræðingi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands eru hvorki maurar né ánamaðkar í Surtsey. Reyndar fundust ánamaðkar í Surtsey árið 1993 en þeir hafa ekki fundist þar síðar. Maurar eru líklega orðnir landlægir hér á landi en þeir eru háðir húsaskjóli manna og lifa ekki villtir í náttúrunni eins og víða erlendis. Þeir gætu því ekki lifað í Surtsey þótt þeir bærust þangað með einhverjum leiðum.
Surtsey myndaðist í eldgosi sem hófst neðansjávar í nóvem...
↧