Quantcast
Channel: Vísindavefurinn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4637

Hvað merkir nafnið á fossinum Glanna?

$
0
0
Örnefnið Glanni er að minnsta kosti á tveimur stöðum á Vesturlandi, annars vegar foss í Norðurá í Mýrasýslu, suður undan Hreðavatni. Hann hét áður Glennrar (máldagi 1306) eða Glennunarfoss (1397) (Íslenskt fornbréfasafn IV:122; Glunnrarfoss í nafnaskrá). Í sóknarlýsingu eftir sr. Jón Magnússon frá 1840 er talað um „sjónhending í Glannarafoss í Norðurá hvar hann hvítfaxar“ (Sýslu- og sóknalýsingar Mýra- og Borgarfjarðarsýslna, (útgáfa væntanleg), bls. 39). Glanni er einnig nafn á streng eða ...

Viewing all articles
Browse latest Browse all 4637