Árið 1993 rak Þórarinn Þórarinsson arkitekt augun í áletrun í klöpp á Þingvöllum, þar sem gengið er út á Spöngina sem er á milli Flosagjár og Nikulásargjár. Áletrunin var uppljómuð í kvöldsólinni en reyndist þó skófum vaxin og máð og gekk því illa að lesa úr stöfunum.
Mynd sem sýnir sykri stráða áletrunina á Spönginni. Giskað hefur verið á að stafirnir séu verk ferðamanna, hugsanlega frá 19. öld. Hægt er að smella á myndina til að skoða stærra eintak af henni. Myndasmiður: Einar Á.E. Sæ...
↧