Spurninin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvaðan er "drykklöng stund" upprunnin og hversu löng er raunverulega drykklöng stund?
Orðið drykklangur í drykklöng stund, drykklangur tími er samsett úr drykkur og lýsingarorðinu langur og segir í raun ekkert hvernig orðið er hugsað og hver tímalengdin er. Elstu heimildir í söfnum Orðabókar Háskólans eru frá síðasta þriðjungi 18. aldar. Sú sem best sýnir tímamerkinguna er úr Stuttu Agripi af Yfirsetu-qvenna frædum sem gefið var út 1789. Þar ste...
↧