Melting er flókið fyrirbæri þar sem fæðan er brotin niður í nýtanlegt form. Niðurbrot fæðunnar hefst í munni, þaðan fer fæðan niður um vélindað í magann þar sem hún er hnoðuð og brotin enn frekar niður. Smáþarmarnir taka svo við fæðumaukinu frá maganum og taka upp þau næringarefni sem við fáum úr matnum þegar meltingu er lokið. Þeir eru að jafnaði um sex metra langir í fullorðnum einstaklingi en yfirborðið þar sem upptaka næringarefna fer fram er allt að 300 fermetrar. Þessi mikla stærð skýrist...
↧