Gos sumra eldstöðva einkennast af stökum kröftugum sprengingum. Milli þeirra geta liðið mínútur eða klukkustundir, en hver sprenging getur staðið í nokkrar mínútur og myndað gosmökk sem nær allt að 20 kílómetra hæð. Þetta eru vúlkönsk gos, nefnd eftir ítölsku eldfjallaeynni Vulcano. Kvikan er yfirleitt ísúr og því seig. Aðstreymi hennar er frekar hægt, og efsti hluti kvikusúlunnar getur kólnað í gosrásinni og stífnað. Undir þessum tappa safnast bráðin kvika, auk kvikugasa og jafnvel vatnsgufu úr...
↧