Sörkushólar er sérkennilegt örnefni. Það kemur tvisvar fyrir í Austur-Skaftafellssýslu en að því er virðist hvergi annars staðar. Nafnið er torskýrt. Menn hafa í hálfkæringi giskað á að nafnið kunni að vera dregið af enska (og alþjóðlega orðinu) Circus (framburðurinn verandi Sörkus) og stafi af því að hólarnir minni á sirkustjöld. Þetta fæst varla staðist, orðið hlýtur að vera eldra en svo í íslensku.
Sörkushólar eru tvennir. Aðrir eru í landi Hvamms í Lóni, hinir í landi Holta á Mýrum. Í örn...
↧