Áður hefur verið fjallað um exem og einkenni þess í svari sama höfundar við spurningunni Hvað er exem og hver eru einkenni þess? en þar segir meðal annars að exem sé langvinnur húðsjúkdómur sem veldur kláða, roða, þurrki og sprungum í húð. Ofnæmisexem (e. atopic eczema) er algengasta tegundin og er einnig algengast hjá börnum. Orsök þess er ekki fullljós en fylgni við ofnæmi er vel þekkt.
Sjúkdómurinn er arfgengur en ekki smitandi; enginn munur virðist þó vera milli kynja né kynþátta á tíðni ...
↧