Trúðfiskar (ættkvíslin Amphiprion) eru af yfirflokki beinfiska (Osteichthyes) og flokki geislaugga (Actinopterygii). Geislauggar eru tegundaauðugasti flokkur hryggdýra og til hans teljast á milli 20 og 30 þúsund tegundir. Þess má geta að geislauggar eru eini hópur fiska sem hafa sundmaga.
Trúðfiskur af tegundinni Amphiprion polymnus.
Innan ættkvíslar trúðfiska eru 27-29 tegundir, allt eftir því hvaða heimild er skoðuð. Hinn eiginlegi trúðfiskur (Amphiprion percula) er appelsínugulur með þrj...
↧