Rannsóknarnefnd sjóslysa starfar samkvæmt lögum nr. 68/2000 með síðari breytingum. Nefndinni er ætlað að kanna orsakir allra sjóslysa er íslensk skip farast en einnig skal nefndin rannsaka öll slys þar sem manntjón verður, svo og önnur þau sjóslys sem hún telur ríkar ástæður til að rannsaka.
Rannsóknarnefnd sjóslysa gefur úr ársskýrslur sem finna má á vef nefndarinnar rns.is. Þegar þetta er skrifað, vorið 2013, er nýjast ársskýrslan á vefnum fyrir árið 2010, gefin út árið 2012. Í þeirri skýrs...
↧