Óákveðna fornafnið báðir er notað um það sem telja má með töluorðinu tveir, tvær, tvö.
Dæmi:
Jón og Sigurður eru vinir. Þeir eru báðir í grunnskóla.
Sigríður og Þóra eru báðar í fimleikum.
Einar og Þóra skila bæði á píanó.
Það er ekki notað með fleirfaldstölunum tvennir, tvennar, tvenn. Þar fer betur á að nota hvor tveggja. Orðið buxur er til dæmis aðeins notað í fleirtölu og þegar segja þarf frá fleiri en einni flík er notað tvennar og hvor tveggja.
Dæmi:
Hann á tvennar buxur og eru ...
↧