Miðtaugakerfið samanstendur af heila og mænu. Helstu vefir þessara mikilvægu líffæra kallast grátt efni og hvítt efni. Heilagráni er á yfirborði hvelaheilans en heilahvítan er þar fyrir innan. Þessu er öfugt farið í mænunni, mænugráni er utan um mænugöngin, sem eru innst, og mænuhvítan utan um hann.
Í gráa efninu eru taugabolir með kjarna og flest önnur frumulíffæri taugunga og stuttir taugaþræðir. Hvíta efnið er gert að mestu leyti úr löngum mýldum taugaþráðum og svonefndum glíafrumum sem e...
↧