Hjartavöðvinn þarf á næringu að halda eins og allir aðrir vefir líkamans, og ekki síst súrefni. Sérstakar æðar, svokallaðar kransæðar, eru slagæðar sem kvíslast um hjartavöðvann og flytja honum súrefni og næringarefni.
Kransæðarnar eru hægri og vinstri kransæðar sem liggja og greinast um hjartahelmingana tvo. Þær klofna út um op á ósæðinni, þar sem hún kemur út úr vinstra hvolfi, fyrir aftan blöðkur ósæðarlokunnar. Vinstri og hægri kransæðarnar og greinar þeirra liggja á yfirborði hjartavöðv...
↧