Oft fer best á því að svara svona spurningum með því að vísa í hversdagslegan skilning á hugtakinu. En nú ber svo við að hinn hversdagslegi skilningur er farinn að skolast til. Á síðari árum er til dæmis farið að tala um fagmennsku í einhvers konar yfirfærðri merkingu þegar vísað er til þess að fólk vinni einfaldlega vinnuna sína. Þetta er orðið áberandi í íþróttum. Gríðarlega vel launaðir íþróttamenn eru orðnir að „sönnum fagmönnum“ fyrir það eitt að spara sig ekki á æfingum og hlýða kalli þjál...
↧