Um þetta hefur áður verið fjallað í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni: Ef aðdráttarafl jarðar getur aflagað mánann, er hann þá ekki smám saman að nálgast jörðina?
En þessu er raunar öfugt farið. Sjávarfallakraftar (e. tidal forces) valda núningi á snúningi jarðar sem dregur úr hverfiþunga og hreyfiorku hennar. Orkan færist yfir á tunglið sem veldur því að það fjarlægist jörðina. Reglubundnar mælingar á fjarlægð tunglsins með leysigeislum sem skotið er frá jörðinni á spegla sem A...
↧