Niccolò Machiavelli er talinn vera einn helsti hugsuður endurreisnarinnar á Ítalíu. Hann fæddist í Flórens árið 1469 á þeim tíma sem borgin var að festa sig í sessi sem miðstöð menningar og viðskipta á Ítalíu. Hann starfaði sem embættismaður en þótti einnig ljómandi gott skáld og eru sum verka hans talin vera með því besta sem skrifað var á ítalska tungu á endurreisnartímanum. Þekktastur er hann án efa fyrir Furstann (Il Principe) sem hann skrifaði eftir að hafa misst opinbert embætti sitt þegar...
↧