Orðasambandið efst á baugi merkir ‘eittvað er efst eða fremst á dagskrá, eitthvað er mikið til umræðu, mikið á dagskrá’. Í orðabók Björns Halldórssonar frá 1814 er orðasambandið í flettunni baugr: það er á baugi ‘á því veltur’. Ýmis tilbrigði koma fram á 19. öld, til dæmis eitthvað er uppi á baugi ‘eitthvað er til umræðu’.
Um orðasambandið má lesa í Mergi málsins eftir Jón G. Friðjónsson sem segir að uppruni og líking séu óljós. Nokkur skyld orðasambönd má finna í fornu máli eins og eiga þa...
↧