Þegar jarðfræðingar tala um frumstæða kviku merkir það einfaldlega að efnasamsetning kvikunnar gefi til kynna að hún hafi borist af miklu dýpi án þess að staldra við í jarðskorpunni á leið sinni upp á yfirborðið.
Þróuð kvika er síðan andstæðan, það er kvika sem hefur stöðvast um hríð á nokkru dýpi í jarðskorpunni og myndað þar kvikuhólf. Kvikuhólf geta verið misstór og á mismiklu dýpi og ef kvikan liggur lengi í þeim án þess að berast upp á yfirborðið getur efnasamsetningin smám saman breyst....
↧