Upprunalega spurningin var:
Ef einstaklingi er gefið vetnisperoxíð (H2O2) og C-vítamín hverjar eru líkurnar á því að manneskjan losni við veiru úr líkamanum eins og t.d. COVID-19?
Stutta svarið við spurningunni er að samkvæmt núverandi þekkingu eru líkurnar engar á því að vetnisperoxíð eða C-vítamín gagnist við COVID-19. Að gefa efnin saman breytir engu þar um.
Vetnisperoxíð hefur efnaformúluna H2O2 og klofnar auðveldlega í vatn (H2O) og súrefni (O2). Margir þekkja efnið undir nafninu ...
↧