Fullkominn demantur samanstendur einungis af kolefnisfrumeindum. Hver og ein kolefnisfrumeind tengist fjórum öðrum kolefnisfrumeindum með sterkum samgildum tengjum og saman mynda frumeindirnar grind eins og sjá má á mynd 1. Þessi sterku tengi valda því að bræðslumark demanta er hæst allra náttúrulegra efna, 3547°C.
Mynd 1. Kolefnisfrumeindirnar í demanti raða sér upp í sterka grind sem gerir demant að þéttasta og harðasta náttúrulega efni veraldar. Myndin sýnir aðeins brot af heildar kolefni...
↧