Í Njáls sögu segir frá því í 120. kafla að Ásgrímur Elliða-Grímsson og Njáls synir gengu til búðar Þorkels háks í leit að liðveislu á þingi. Hvöss orðaskipti urðu milli Skarphéðins Njálssonar og Þorkels. Þorkell þreif sax sitt og Skarphéðinn stóð með reidda öxina og sagði: Ger þú nú annaðhvort Þorkell hákur að slíðra saxið og sest niður eða eg keyri öxina í höfuð þér og klýf þig í herðar niður.
Maður klýfur annan í herðar niður. Úr Svalbarðsbók frá 14. öld.
Af þessum orðum að dæma er hög...
↧