Löng hefð er fyrir því á Englandi og í sumum öðrum enskumælandi löndum að kalla rýmið sem leikarar sitja stundum í og spjalla saman áður en þeir fara inn á svið græna herbergið (e. green room). Á meginlandi Evrópu ganga sams konar herbergi yfirleitt undir öðrum nöfnum. Í Frakklandi kallast þau foyer des artistes, í Þýskalandi Konversationszimmer, á Ítalíu sala degli artisti, á Spáni salón de artistas og í Hollandi artistenfoyer.
Í Iðnó, þar sem Leikfélag Reykjavíkur starfaði frá 1897 þangað t...
↧