Enrico Fermi var eðlisfræðingur sem fæddist á Ítalíu árið 1901 og lést árið 1954 í Bandaríkjunum. Hann markaði djúp spor í eðlisfræði tuttugustu aldar, einkum í kjarneðlisfræði og öreindafræði. Lengdareiningin fermi er til dæmis kennd við hann, og sömuleiðis fermíeindir en skiptaeðli þeirra er lykilatriði í skammtafræði. Hann setti fram kenningu um veikar víxlverkanir sem valda meðal annars beta-geislum og sú kenning hans olli straumhvörfum. Hann var manna ötulastur að rannsaka nifteindir á fjór...
↧